Hátíðarsalir.is

GKG salurinn

Garðabær · 150–200 manns

Myndir á leiðinni

Um salinn

GKG salurinn er staðsettur í nýju og stórglæsilegu húsi Golfklúbbs Garðabæjar, aðeins steinsnar frá Vífilsstöðum. Salurinn er bjartur og fallegur, með stórum gluggum sem bjóða upp á einstakt útsýni. Fyrir framan salinn er stór verönd með borðum og stólum, fullkomin fyrir þá sem vilja njóta veðurblíðunnar og ferska loftsins. Inni í salnum skapa falleg eikargólf og stílhreinar innréttingar hlýja og góða stemningu. Salurinn rúmar þægilega 150 - 200 manns til borðs og hægt er að aðlaga uppstillinguna að óskum hvers og eins. Þar er bar, fullkomið eldhús, gott hljóðkerfi og loftefni sem tryggja framúrskarandi hljóðvist. Á staðnum er píanó fyrir tónlistaráhugafólk og fullkomin stýring á ljósum og birtu. Meðal annars er boðið upp á góða flatskjái og myndvarpa fyrir þá sem þurfa. Aðkoman að húsinu er mjög góð, hvort sem er fyrir rútur eða einkabíla, með nægum bílastæðum. Við bjóðum upp á vandaða veisluþjónustu með hlaðborðum, smáréttum, steikum og sjávarréttum, allt eftir þínum óskum.

Aðstaða

Veitingar og drykkir

VínveitingaleyfiVeitingar· í boði ef þess er óskaðHressingar· í boði ef þess er óskaðÁfengi· í boði ef þess er óskaðStarfsfólk· í boði ef þess er óskaðÞrif· í boði ef þess er óskað

Aðstaða

Eldhús á staðnumBúðarborð / bárinnÚtisvæði / garður

Búnaður og tækni

SkjávarpiLED-skjár / leikmyndaskjárWi-Fi

Aðgengi

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða

Auka þjónusta

Frítt bílastæði

Algengar spurningar

Hvað rúmar GKG salurinn marga gesti?

GKG salurinn rúmar 150–200 manns.

Hvar er GKG salurinn?

GKG salurinn er staðsettur í Garðabær, 34M8+PVW.

Hvernig kemst ég í samband við GKG salurinn?

Fylltu út fyrirspurnarformið hér á síðunni, þá berst fyrirspurnin beint til eigenda.