Fjörukráin Veitingastaður
Hafnarfjörður · Allt að 54 manns
Um salinn
Notalegur veitingastaður í hjarta Hafnarfjarðar, Fjaran/Valhöll, býður upp á einstaka upplifun í sögulegu umhverfi. Húsið, sem hefur staðið frá árinu 1841 og er næstelsta hús Hafnarfjarðar, býður upp á sæti fyrir allt að 36 manns á neðri hæð. Þar má einnig finna notalegan hornsófa og hátt borð með stólum sem býður upp á hlýlega stemningu. Á efri hæð er vinaleg setustofa og hlýlegt herbergi með sæti fyrir 18 matargesti. Við erum opin fyrir matargesti alla daga frá kl. 18:00 og bjóðum hópum einnig að koma í hádeginu. Einstakt við þetta hús er að innréttingar og húsgögn eru gerð úr hundrað ára gömlum neftóbaks- og víntunnum, sem gefur staðnum sérstakan karakter. Veggir á neðri hæðinni prýða málverk frá listamönnunum Lukas Gucio Gordon og Elísu Ósk Viðarsdóttur, sem sýna Hafnarfjörð og veisluborð goðanna. Að auki er hægt að hafa innangengt á báðum hæðum yfir í Fjörugarðinn, sem gerir gestum kleift að njóta afþreyingar hans eða halda sér út af fyrir sig í afmörkuðu rými. Fjaran/Valhöll er fullkominn staður fyrir fjölbreyttar samkomur, þar á meðal fermingarveislur, afmæli, fundi, brúðkaup og fleiri viðburði sem krefjast hlýlegs og persónulegs umhverfis.
Aðstaða
Veitingar og drykkir
Algengar spurningar
Hvað rúmar Fjörukráin Veitingastaður marga gesti?
Fjörukráin Veitingastaður rúmar allt að 54 manns.
Hvar er Fjörukráin Veitingastaður?
Fjörukráin Veitingastaður er staðsettur í Hafnarfjörður, Víkingastræti 1.
Hvernig kemst ég í samband við Fjörukráin Veitingastaður?
Fylltu út fyrirspurnarformið hér á síðunni, þá berst fyrirspurnin beint til eigenda.